21.11.2008 | 12:05
Hrun Íslands - Baldur McQueen - Í tímaröð.
Baldur McQueen er hér með áhugaverða færslu um hrun Íslands.
http://www.baldurmcqueen.com/2008/1121-hrun-islands-i-vinnslu
21.11.2008 | 10:08
Stórustu Pissudúkkur í Heimi - Myndband- Trailer - viðtal-
'Eg læt hér fylgja 10. mínútna bút úr viðtali sem ég tók við John Mynderup (viðskiftablaðamaður á Ekstra Blaðinu ´Danmörku, sem leyddi þriggja manna teymi í yfir sex mánuði í rannsókn á íslensku "bobblunni"). Þátturinn hefur að innihalda upplýsingar sem eru bæði "gamlar" og nýjar - eldfimar, spennandi og tímabærar. Mitt mat og um það er ég ekki einn - er að fjölmiðlar og blaðamenn þessa lands hafa ekki staðið sig í stykkinu. Þegar ástandið er orðið þannig að almenningur þarf að taka að sér hlutverk blaðamanna og í bloggheimum knýja fram lágmarksleiðréttingar á öskrandi siðspillingu, þá er það ekki bara sjálfstæð fréttamennska eða upplýsingamiðlun sem er í bráðri hættu. 'Astandið er miklu alvarlegra en það, auðvitað finnast beittir og heiðarlegir fréttamenn en það verður bara að viðurkennast að þeir eru ansi fáir og það er ekki bara grátlegt heldur beinlínis sjokkerandi að þessa daganna ganga um tugir ef ekki hundruðir fjölmiðlamanna með uppsagnarbréf í vasanum og fæstir hafa manndóm til að opna kjaftinn. Kallaðu það skort á faglegum metnaði, þrælslund, roluskap eða eitthvað enn verra, Staðreyndin er sú að þeir, líkt og ráðamenn þessarar þjóðar hafa fyrirgert rétti sínum á virðingu og trausti almennings. Þeir ljúga blákalt uppí opið geðið á okkur og reikna okkur fyrir fífl með gullfiskaminni. Fyrirgefðu tóninn - en ég er bara helvíti fúll yfir þessu öllu saman og ekki bara krefst, heldur reikna með uppstokkun en veit líka að þá þarf ég sjálfur að bretta upp ermarnar og gera eitthvað, í gamla daga var það kallað að vera með í mótstandshreyfingunni og þótti víst fínt, svona eftir á....
19.11.2008 | 15:55
Skjaldborg um Alþingishúsið- Október var á staðnum - Myndband.
Skjaldborg var slegin um Alþingishúsið í dag og Október var að sjálfsögðu á staðnum.
Hafið samband við Október Hópinn ef eitthvað er í bígerð , fundir , mótmæli o.s.f.r.v og við mætum.
Einnig ef "aktivistar" ætla að framkvæma einhver "stönt" þá hafið samband og við sjáum til þess að skilaboðum almennings sé komið á framfæri.
Oktobero47@gmail.com
Sömuleiðis ef einhverjir vilja taka þátt í Október þá hafa samband.
Lifi Upplýsingin.
18.11.2008 | 17:20
Dóttir forsetans í stjórn Haga. Október Hópurinn.
Hér er akkúrat í hnotskurn ástæðan fyrir því að þessi hópur tók sig saman um að flytja fólki þær fréttir sem hinir opinberu "fréttamiðlar" virðast ekki hafa nennu eða/og getu til að færa okkur.
Jón Ásgeir og seta hans í stjórnum fyrirtækja hefur verið mikið til umræðu.... og hér í tengdri frétt er sérstaklega tekið fram að hann sitji í stjórn Haga ásamt karli föður sínum.... ekki fréttnæmt per se EN
..... af hverju er enginn að segja okkur hver þriðji stjórnarmaðurinn er?????
Skoðið skjalið hér og leyfið okkur að heyra hvað ykkur finnst um þetta!!!
Dóttir forseta lýðveldisins í stjórn með brotamanninum Jóni Ásgeiri ???
Er ekkert athugavert við það?
Klikkið á skjalið til að stækka.
Kveðja fh Októbers!!!
Heiða
Arnar Helgi
18.11.2008 | 16:44
Fyrsta Skúbb - Október hópsins - Stjórn Haga.
Hér er akkúrat í hnotskurn ástæðan fyrir því að þessi hópur tók sig saman um að flytja fólki þær fréttir sem hinir opinberu "fréttamiðlar" virðast ekki hafa nennu eða/og getu til að færa okkur.
Jón Ásgeir og seta hans í stjórnum fyrirtækja hefur verið mikið til umræðu.... og hér í tengdri frétt er sérstaklega tekið fram að hann sitji í stjórn Haga ásamt karli föður sínum.... ekki fréttnæmt per se EN
..... af hverju er enginn að segja okkur hver þriðji stjórnarmaðurinn er?????
Skoðið skjalið hér og leyfið okkur að heyra hvað ykkur finnst um þetta!!!
Dóttir forseta lýðveldisins í stjórn með brotamanninum Jóni Ásgeiri ???
Er ekkert athugavert við það?
Klikkið á skjalið til að stækka.
Kveðja fh Októbers!!!
Heiða
Arnar Helgi
Segir sig úr fleiri stjórnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Oktober
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar